Ályktun frá stjórn Frjálslynda flokksins

Stjórn Frjálslynda flokksins gerir þá kröfu að þing verði rofið og boðað til kosninga eins fljótt og verða má. Þetta er nauðsynlegt vegna þess að:

Niðurstöður atkvæðagreiðslu gærdagsins varðandi Landsdóm sýndu og sönnuðu að núverandi þingmenn eru ekki í stakk búnir til að takast á við það verkefni að skapa sátt við almenning í landinu.

Núverandi Alþingi sýndi og sannaði að pólitískar flokkslínur skipta meira máli en hagsmunir almennings og að enginn vilji er til að taka á pólitískri samspillingu.

Núverandi Alþingi sýndi engan vilja til þessa að gera upp fortíðina og draga til ábyrgðar þá sem raunverulega hafa valdið þjóðinni ómældu tjóni sem almenningur ber nú skaðann af með skertum lífskjörum um ókomna framtíð.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Lögin um Landsdóm duga ekki á Íslandi. Þegar þau voru sett þá var gert ráð fyrir því að Alþingi væri skipað ábyrgum einstaklingum með siðferðisþroska á borð við þann sem gegn um alla sögu hefur verið tengdur við fullorðið fólk.

Það getur enginn orðið nothæfur stjórnmálamaður ef hann dugar ekki þegar það eitt skiptir máli að vera maður.

Árni Gunnarsson, 29.9.2010 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband