Mannréttindi ber að virða.

Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sendi frá sér álit

fyrir síðustu áramót þar sem fiskveiðistjórnarkerfið okkar

var sagt brjóta mannréttindi.  Stjórnvöldum var veittur  sex

mánaða frestur til að svara álitinu og gera grein fyrir

breytingum til úrbóta

Nú, þegar fresturinn er að renna út, hafa stjórnvöld enn ekki

sagt frá fyrirhuguðum  aðgerðum sínum til að bæta fyrir þau

mannréttindabrot, sem framin hafa verið á sjómönnum og

verkafólki í sjávarbyggðum landsins, um árabil.

Úrskurður mannréttindanefndarinnar kveður skýrt á um það,

að úthlutun fiskveiðiheimilda til fárra útvaldra stangist á við

grundvallarreglur alþjóðasáttmála um borgaraleg réttindi.

Sem sagt, íslensk stjórnvöld hafa um árabil brotið

mannréttindi á þegnum sínum og alls ekki lagt hlustir við

varnaðarorðum Frjálslynda flokksins, sem hefur, allt frá

stofnun fyrir tíu árum, haldið því fram, að verið væri að brjóta

lög og traðka á mannréttindum.

 

Þessi mannréttindabrot hafa kollvarpað þjóðfélagsmyndinni,

lagt sjávarbyggðirnar í rúst, skilið fólk eftir á köldum klaka,

atvinnulaust  með  óseljanlegar  eignir, fólk sem áður átti gott

líf, efnahagslega og félagslega. 

 

Þau andlegu sár, sem þessi brot á mannréttindum skilja eftir

sig,  eru ævarandi blettur á þeim stjórnarháttum sem

sjávarúvegsráðherrar Sjálfstæðisflokksins, með Framsókn og

nú Samfylkingu stunda, gagnvart stórum hópi landsmanna.

Svör og aðgerðir núverandi ríkisstjórnar við áliti

mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna eiga skilyrðislaust

að koma fyrir Alþingi nú þegar, og þar verður að koma skýrt

fram, að ætlunin sé að breyta núverandi

fiskveiðistjórnunarkerfi á þann veg, að ekki verði um frekari

mannréttindabrot að ræða. 

Á sama tíma og íslensk stjórnvöld brjóta mannréttindi eru

þau að falast eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,

ráðinu sem ætlað er að gæta þess að aðildarþjóðirnar standi

vörð um mannréttindi í heiminum.  Hvílíkur tvískinnungur !

 

Að ætla sér að fá sæti á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og fremja á sama tíma mannréttindabrot

á þegnum sínum, er atriði sem engan veginn fer saman.


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband