3.7.2008 | 21:43
Bregðast þarf við nú þegar og lækka eldsneytisgjald.
Ríkið verður að gjöra svo vel að koma til móts við almenning í landinu á þeim tímum efnahagsþrenginga sem gengisfall krónunnar er. Lækka þarf tímabundið álögur á bensín og díselolíu til að vega á móti þeim miklu hækkunum sem litið hafa dagsins ljós og raska í raun hvers konar áætlanagerð heimilanna í landinu sem og atvinnufyrirtækja. Lækkun eldsneytisgjalds nú þegar, getur slegið á verðbólguna og minnkað áhrif á nýgerða kjarasamninga í landinu.Gera verður þá kröfu til stjórnvalda að þau gangi fram með sanngirni að leiðarljósi í stað óbilgirni þess efnis að senda reikninginn inn á heimilin meðan gumað er af hallalausum ríkisrekstri.Ríkisstjórnin getur ekki horft aðgerðalaus á ástandið, lengur. Atvinnubílstjórar hafa fengið nóg. Alls konar kvaðir og höft hafa verið innleidd í formi EES reglugerðar um vökulög sem bílstjórum er gert að fara eftir, en íslensk stjórnvöld hafa enn ekki sótt um undanþágu frá þeirri hinni sömu reglugerð. Hér getur verið um að ræða sektir vegna tímamælinga milli staða sem til dæmis veðurfarskilyrði á leiðum um langan veg hér á landi, hafa áhrif á.Sektir þessar skrá einnig punkta í ökuferilsskrá bílstjóra. Það er því mikilvægt að flýta vinnu við umsókn um undanþágu okkur Íslendingum til handa þanning að viðunandi starfsumhverfi geti verið til staðar. Nær allir flutningar um landið fara nú fram landleiðina og hvers konar álögur á flutningafyrirtæki hafa margfeldisáhrif á vöruverð landsmanna.Tryggja þarf viðunandi rekstarskilyrði atvinnubílstjóra með aðgerðum af hálfu stjórnvalda hið fyrsta.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.