Hvað kostar framboðið til Öryggisráðsins Íslendinga ?

Það hefur varla farið framhjá landsmönnum að ferðalög ráðamanna á erlenda grund hafa verið mikil undanfarið og jafnvel í formi ferðalaga í einkaþotum milli staða. Er það ásættanlegt að auka útgjöld íslenska ríkisins svo og svo mikið í formi ferðalaga til hinna ýmsu heimshorna af hálfu ríkisstjórnar landsins ? Skal öllu kostað til að komast í sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna ?Undir hvaða formerkjum eru Íslendingar  annars að  bjóða sig fram til þessarra starfa ?   Ísland hefur mátt þurfa taka því að fá niðurstöðu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um brot gegn þegnum í eigin landi.Mál þetta fékkst  ekki einu sinni rætt á Alþingi áður en sent var utan svar um aðgerðaleysi að hluta til ?Raunin er sú að núverandi ríkisstjórnarflokkar hafa ekkert að gert til þess að umbreyta því ástandi hér innanlands sem hefur það í för með sér að mannréttindi eru brotin í kvótakerfi sjávarútvegs. Þar er á ferð óviðunandi mismunun varðandi aðkomu manna í atvinnugreinina.Þetta ástand er ekki að koma til sögu í dag heldur hefur kerfi þetta verið við lýði í hartnær tvo áratugi og leikið landsmenn illa með tilheyrandi verðmætasóun.Fyrst er að skoða ástand heima fyrir áður en menn hyggjast hjálpa til um mannréttindi annars staðar í veröldinni. 

Grétar Mar Jónsson alþingismaður Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi.

(grein birt í Fréttablaðinu 16 júli.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband