Fræðslu þarf að bæta.

Launþegar á vinnumarkaði greiða iðgjald í lífeyrissjóð og félagsgjöld til verkalýðsfélaga af vinnu sinni og öðlast með því móti ákveðin réttindi sem eru samningsatriði í kjarasamningum hvers félags fyrir sig. 

Það er því mjög mikilvægt að launamenn séu vel upplýstir um sinn rétt, þegar að töku lífeyris kemur við aldursmörk eða þá ef viðkomandi þarf vegna heilsubrests að leita sinna réttinda fyrr.  Almannatryggingakerfið , Tryggingastofnun, hefur einnig að geyma ýmis réttindi sem jafn nauðsynlegt er að menn fái vitneskju um frá hinu opinbera með reglubundnum hætti.Fólk veit ekki um sín réttindi.

Því miður er misbrestur á því ,að, aldraðir og sjúkir hafi fengið upplýsingar um þau réttindi sem þeir eiga í lífeyrissjóðum sem og í almannatryggingakerfinu. 

Ég tel að ASÍ þurfi að stuðla að því að verkalýðsfélög kynni félagsmönnum sín réttindi reglulega, og jafnframt þarf að kynna almannatryggingalöggjöfina og hvers konar breytingar  mun betur en verið hefur. 

 Ýmsar stofnanir ganga að því sem gefnu að allir geti leitað upplýsinga í tölvutæku formi á netinu en þar gleymist að þar hafa ekki allir aðgang eða hafa nokkurn tímann notað tölvur.  

Hér þarf annað hvort að gefa út meira fræðsluefni, eða nota miðla sem ná til alls almennings í landinu. Sjómenn geta til dæmis hafið töku lífeyris  eftir 25 ár til sjós, við 60 ára aldur, þótt ellilífeyrir almannatrygginga taki ekki gildi fyrr en við 67 ára aldur en ekki er ég  endilega viss um að allir sjómenn viti um það atriði.

Forsenda  þess að fólk fái notið réttinda sinna er vitneskja um þau hin sömu, og það er öllum til hagsbóta að hver og einn þekki vel sín réttindi sem þeir hafa áunnið sér.

 

Grétar Mar Jónsson þingmaður Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi.

(grein birt í 24 stundum, 13, águst.) 

  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband