25.1.2009 | 15:54
Framsóknarflokkurinn og kvótakerfið.
Enn bólar ekki á vilja til endurskoðunar í fiskveiðstjórninni af hálfu Framsóknarmanna, að sjá má, þótt kerfið sé ein helsta rót vandans sem við er að fást í íslensku efnahagslífi.Ég hvet landsmenn til þess að fylgjast vel með því hvort flokkurinn ætlar að halda áfram á braut þess þjóðhagslega óhagkvæma kerfis í sjávarútvegi sem hefur verið við lýði með því að sópa arfleifðinni undir teppið í þessu efni.Íslendingar þurfa engan málamyndaleik þess efnis að setja ákvæði um fiskimiðin í stjórnarskrá , því lögin um stjórn fiskveiða eru nægilega skýr, þess efnis að fiskimiðin kring um landið eru sameign þjóðarinnar. Hið frálsa framsal sem fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins tók þátt í því að setja inn í þau hin sömu lög, gekk gjörsamlega á skjön við fyrstu grein laganna með framkvæmd mála s,s, veði í fjármálastofnunum og öllu því braski og óheilbrigðu verðmyndun sjávarafurða sem þar átti sér stað. Ef stjórnsýslulög hefðu tekið gildi á þeim tíma er fyrrum formaður Framsóknarflokksins sat sem sjávarútvegsráðherra, hefði sá hinn sami að öllum líkindum verið vanhæfur til ákvarðanatöku um málið, vegna aðkomu að sjávarútvegsfyrirtæki.Öll sú þjóðhagslega verðmætasóun sem kvótakerfi sjávarútvegs hefur valdið með framsalsheimildaákvæði laganna, er gífurleg og nægir þar að nefna atvinnu og eignir einstaklinga sem og hins opinbera í sjávarbyggðum um land allt.Kerfið sjálft og markmið þess að byggja upp verðmesta stofninn með kvótasetningu, hefur heldur ekki tekist og menn ekki getað horfst í augu við.Siðast en ekki síst fengum við Íslendingar ábendingu um mannréttindabrot sökum þess að nýliðun er ekki fyrir hendi þ.e. mönnum er meinaður aðgangur að fiskveiðum.
Mál er að linni.
Grétar Mar Jónsson þingmaður Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi.
grein birt í Fréttablaðinu 24 janaúar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.