21.3.2009 | 13:11
Barbabrellur Framsóknarmanna fyrir kosningar.
Rétt einu sinni enn reynir flokkurinn að slá ryki í augu kjósenda fyrir kosningar með gylliboðum nú 20 % niðurfellingu skulda þar sem ekki fylgir nokkur einasta áætlun um það hvar eigi að taka peninga og hver á að borga reikninginn.
Fjármálaráðherra lét þessi getið í þingumræðuunn að lausleg áætlun um kostnað væri
1200 milljarðar.
Lið fyrir lið eru flest allar átján tillögur Framsóknarmanna, um atriði sem annað hvort eru nú þegar komnar til framkvæmda í efnahagsmálum eða eru í gangi til vinnslu varðandi efnahagsaðgerðir.
Með öðrum orðum ekkert nýtt, aðeins upptalning á hlutum sem eru í gangi.
Tillögurnar eru kynntar sem niðurstöður úr vinnu hóps hagfræðinga og lögfræðinga sem þingmanninum Birki Jóni Jónssyni varð tíðrætt um að menn skyldu ekki vanvirða.
Það skiptir mig ekki máli hver smíðar lélegar tillögur eins og þessar en tel mér skylt að benda á hversu afdalaléleg hugmyndafræði er þar á ferð. Það er engin heil brú í því að fella niður skuldir þeirra sem ekki þurfa á því að halda líkt og hugmyndir um 20 % flata niðurfellingu skulda innihalda. Við munum ekki standa undir slíkum skuldbindingum sem þessar tillögur gera ráð fyrir, en Framsóknarflokkurinn hefur áður komið fram með hugmyndir svo sem með hækkun lána Íbúðalánasjóðs, sem síðar olli innkomu bankanna á húsnæðislánamarkað sem ekki hafa beinlínis reynst þjóðinni efnahagslega skynsamlegt.
Þvert á móti var þar hellt olíu á eld þenslu í þjóðfélagi þar sem allt var þanið fyrir.
Við skyldum því sannarlega rýna vel í þau gylliboð sem menn draga úr farteskinu fyrir þessar kosningar.
Grétar Mar Jónsson þingmaður Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.