Þöggun eða....

Það vekur furðu að í dag er fjallað um stefnu stjórnmálaflokkana í atvinnumálum á DV.is en þar sér ekki staf um stefnu Frjálslynda flokksins.

Fyrir áhugasama er hér stefna Frjálslynda flokksins í atvinnu og efnahagsmálum en þetta tvennt fer saman og er ekki hægt að aðskilja;

1. Mikilvægasta verkefni íslenskra stjórnvalda er að endurvekja tiltrú og traust á alþjóðavettvangi. Það er skilyrði fyrir því að árangur náist í uppbyggingu efnahags og þar með endurreisn atvinnulífsins.

2. Bankakerfið verði endurreist og  bankarnir endurfjármagnaðir þannig að þeir öðlist getu til þess að veita eðlilega lánafyrirgreiðslu. Mjög mikilvægt er að tryggja að fyrirtæki  með lífvænlega afkomu stöðvist ekki vegna fjárskorts.

3. Flest  störf verða til í minni fyrirtækjum. Fjölmörg slík fyrirtæki hafa nú þegar gefist upp og önnur munu gera það að óbreyttu. Þessari þróun verður að snúa við, eins og kostur er.  Því ber að leggja mikla áherslu á öflugan stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki sem geta átt sér lífvænlega framtíð.

4. Frjálslyndi flokkurinn styður það, að stofnaður verði  Fjárfestingasjóður er yfirtaki illa sett fyrirtæki, endurreisi  þau ef fært reynist og selji síðan og tryggi þannig eins og unnt er að sem minnst verðmæti tapist.

5. Mikilvægustu verðmæti þjóðarinnar felast í mannauði hennar,  góðri menntun og hugviti. Því er brýnt að veita  stuðning við nýsköpun og sprotafyrirtæki og skapa þeim tækifæri til aðgangs að nægu fjármagni.

6. Íslenskur sjávarútvegur á nú við alvarlegan fjárhagsvanda að stríða af ástæðum sem Frjálslyndi flokkurinn var margsinnis búinn að vara við.  Gjörbreytt sjávarútvegsstefna er mikilvægur liður í endurreisninni og  forsenda þess að unnt verði að byggja hér upp öflugan og fjárhagslega sterkan sjávarútveg til frambúðar. Því þarf nú þegar að fara  fram róttæk endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða og koma á fiskveiðistjórnunarkerfi sem byggir á tillögum Frjálslynda flokksins og viðurkennir í verki að fiskurinn er sameign íslensku þjóðarinnar.

7. Landbúnaðurinn gegnir því mikilvæga hlutverki að tryggja matvælaöryggi þjóðarinnar og hann er mikilvægur grundvöllur atvinnulífs og byggðar í landinu. Því ber að standa vörð um íslenskan landbúnað og gera sérstakar ráðstafanir til þess að gera bændum kleift að mæta þeim alvarlega fjárhagsvanda sem þeir standa nú frammi fyrir.

8. Á því mikla þensluskeiði sem hér ríkti árum saman með allt of háu gengi íslensku krónunnar, þrengdi mjög að iðnfyrirtækjum og mörg þeirra flúðu land. Eftir efnahagshrunið hafa nú skapast góðir möguleikar til endurreisnar fyrir íslensk iðnfyrirtæki. Flest slík fyrirtæki eru nú mjög skuldsett. Til þess að  gera þeim kleift að nýta þau sóknarfæri sem við blasa, innanlands sem utan, verða fyrirtækin að eiga kost á góðri  og hagkvæmri fjármögnun.

9. Mikilvægasta verkefnið í atvinnu- og efnahagsmálum er að auka útflutningstekjur þjóðarinnar. Á því sviði eru sem betur fer fjölmörg sóknarfæri. Því ber að leggja sérstaka áherslu á fjárhagslegan stuðning hins opinbera við markaðssókn íslenskra fyrirtækja  og kynningu á Íslandi. Á þetta jafnt við um vöruútflutning  og  ferðamannaiðnað og hversskonar  þjónustu. Útflutningsráð verði virkjað sem mest til þátttöku í slíkum verkefnum.

   10.  Á  þeim miklu  samdráttar- og atvinnuleysistímum sem nú ríkja, er mjög brýnt að verklegar framkvæmdir á vegum hins opinbera verði ekki skornar niður.
Frjálslyndi flokkurinn  vill beita sér fyrir samstöðu um  forgangsröðun á hagkvæmustu framkvæmdum í samgöngumálum. Markmiðið er að ráðist verði í  framkvæmdir sem  séu arðvænlegar, stuðli að bættum samgöngum og auki umferðaröryggi í landinu, um leið og þær skapa mikilvæg störf  á þessu samdráttarskeiði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband