Ráð til ríkisstjórarinnar

Ríkistjórn sem er að hreinsa upp skítinn eftir fyrri ríkistjórnir, framsóknar-, sjálfstæðis- og samfylkingar þarf að taka margar óvinsælar ákvarðanir, eins og að hækka skatta og skera niður til velferðarmála, á eitt trop á hendi og það er að stokka upp fiskveiðistjórnunarkerfið og gera rótækar breytingar á sjávarútvegi. Þetta myndi afla henni mikilla vinsælda og kostar ekkert.

Þetta getur hún gert með því; í fyrsta lagi að samþykkja skötuselsfrumvarpið, auka við aflann í strandveiðunum og lengja tímabil þeirra og hefja fyrningu veiðiheimilda 2010 eins og lofað var í kosningarbaráttunni og er í stjórnarsáttmálanum. Einnig væri mjög gott að gefa frjálsar úthafsveiðar á rækju sem myndi skapa mörg störf, sérstaklega í landi.

Ríkisstjórnin verður að virða mannréttindi íslenskra sjómanna eins og Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna ályktaði um fyrir tveimur árum síðan. Ef það verður gert eins og lofað hefur verið ásamt því að bæta við veiðiheimildir í flestum tegundum getum við unnið okkur út úr þeirri kreppu sem við erum nú í.

En allar viðbótar veiðiheimildir sem verða gefnar út,  á íslenska ríkið að leigja beint frá sér en ekki afhenda sægreifaklíkunni. 

Ef það þarf lagabreytingar til þess að svo geti orðið þá verður Alþingi að gera þær, strax.

Mitt áliti er að þess þurfi ekki heldur sé hægt að gera þetta með reglugerð, samanber ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar þegar hann ákvað að hefja mætti hvalveiðar sem hann gerði með reglugerð.

Það eru ókvótabundnar tegundir fyrir norðan Látrabjarg sem eru kvótabundnar fyrir sunnan bjargið.

Fordæmi eru fyrir því að það sé hægt að gera breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu með reglugerð eins og dæmi eru um með línuívilnun, byggðakvóta og kvóta til áframeldis og fyrrnefndar breytingar .

Það er hægt að auka tekjur sjávarútvegsins um 100 milljarða og ganga til móts við álit Mannréttindanefndarinnar að hluta með þessum breytingum.

Ég mun taka hatt minn ofan fyrir núverandi sjávarútvegsráðherra Jóni Bjarnasyni ef hann nær þessu fram sem ég veit að hann vill gera.  Þetta er fyrsta skrefið í því að bregðast við mannréttindabrotum á íslenskum sjómönnum og fyrsta skerf í að brjóta upp kerfi sem mikil ósátt er um í íslensku samfélagi, vegna þess að það er óréttlátt.

Að taka upp sóknardagkerfi 1. sept. 2010 væri samt besti kosturinn.  

85-90% íslensku þjóðarinnar er á móti núverandi kerfi samkvæmt skoðunarkönnunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Landráðastjórnin sem nú er við völd, mun aldrei gera það sem þarf að gera. Hún er upptekin við að selja landið í hendur útlendingum, og takist henni það, skiptir nákvæmlega engu móti hvort þetta glæpakvótakerfi verður tekið í burtu eða ekki.

Öllum fiskveiðum verður stórnað frá Brussel.

Framsókn, Sjælfstæðisflokkur og Samfylking eru harðsoðnir glæpaflokkar, enn VG eru þeir verstu, því þeir svíkja landið. það þarf nytt fólk með nyjar hugmyndir um pólitík.

Þar sem nýju pólitíkusarnir verða að vera íslenskir, er vonlaust að krefjast þess að þeir séu 100% heiðarlegir. Bara við það eitt að verða þingmenn eða ráðherrar, spillast þeir næstum strax,og eru þar með næstum ónítir.

Að þeir skildu svíkja orð sín kom engum á óvart. Það er eðli kommúnista og vinstri fólks að vera óheiðarlegt í pólitík. þannig hefur það alltaf verið og mun alltaf verða.

Takk fyrir pistilinn.

Óskar Arnórsson, 24.1.2010 kl. 18:45

2 Smámynd: Bjarni Líndal Gestsson

Jón Bjarnason fær enga sátt um stjórn fiskveiða með störfum nefdar hagsmunaaðila sem nú starfar. Því verður hann að hafa kjark til að beita reglugerða aðferðinni þegar nefndin hefur lokið störfum. Sú aðferð er fljótvirkust, og hefur fordæmi eins og þú bendir á.

Bjarni Líndal Gestsson, 24.1.2010 kl. 19:07

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Sammála.

Jóhannes Ragnarsson, 24.1.2010 kl. 19:46

4 identicon

Heill og sæll; Grétar Mar, æfinlega - sem og, þið aðrir, hér á síðu hans !

Grétar Mar !

Þessi Djöfulsins skítseyði; Jóhanna og Steingrímur, eru nú búin að grafa svo undan landsmönnum flestum;; að vart eigum okkur viðreisnar von.

Hyggist þú; leggja hið minnsta traust, á þessi gerpi - þá; er illa fyrir þér komið, gamli góði félagi.

Um Jón Bjarnason; þarf vart að hafa mörg orð - jú; kannski þekkir hann (með leiðsögn) muninn á kálfi og lambhrút / alls ekki, Þorki né Keilu, bjálfinn sá.

Vondir voru; B og D listar - og eru / en þetta andskotans kraðak, sem nú vélar um völd og áhrif, verðum við að koma af okkur - MEÐ ÖLLUM TILTÆKUM RÁÐUM - og reyna að berja saman harðsækna utanþingsstjórn, sem þorir, að taka á málum.

Með beztu kveðjum; sem ætíð, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 01:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband