16.4.2009 | 16:32
Steingrímur J. Sigfússon tvöfaldur
16.4.2009 | 14:52
Hvort eru það handfæraveiðar eða strandveiðar?
Það er nú alltaf gott þegar menn ná áttum korteri fyrir kosningar. Það hefur formaður Vinstri Grænna nú gert eftir að hans flokkur hefur komið í veg fyrir það að tillaga okkar um frjálsar handfæraveiðar verði leyfðar á komandi sumri. Nú vill hann leyfa frjálsar strandveiðar á litlum bátum.
Vinstri Grænir hafa ekki sýnt fram til þessa mikinn vilja til að standa fyrir breytingum á núverandi fiskveiðistjórnakerfi og meðal annars komið í veg fyrir að okkar hugmynd um frjálsar handfæraveiðar kæmist úr sjávarútvegsnefnd. Kannski vantar þeim núna haldbærar tillögur um atvinnuuppbyggingu aðrar en að lækka laun. En við í Frjálslynda flokknum fögnum því að sjálfsögðu þegar menn ætla sér að gera góða og gagnlega hluti fyrir land og þjóð.
Þetta kemur fram í frétt á Visir.is og mætti ætla að Steingrímur hafi gefið sér tíma til að lesa stefnuskrá Frjálslynda flokksins og gert hana að sinni. Það er gott að geta lagt Vinstri Grænum til stefnumál í komandi kosningum því ekki veitir þeim af. Samkvæmt þessum tillögum er samt raunaukning kvóta ekki nema um 2 þúsund tonn þar sem hugmyndirnar ganga út á tilflutning á milli kerfa.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2009 | 09:08
Mútur
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking vilja meina að flokkarnir hafi fengið fjárstyrki í lok árs 2006 þegar vitað var að lögum um framlög til stjórnmálaflokka yrði breytt.
Ég sagði í gær á Alþingi um þessa svokölluðu fjárstyrki; Ég segi mútur, og stjórnmálamenn vita upp á sig skömmina. Þegar um óeðlilega háar fjárhæðir er að ræða í styrkjum til stjórnmálaflokka er það ekkert annað en mútur.
Það er ekki nóg fyrir Samfylkinguna að fela sig á bak við það að það hafi verið Jóhanna Sigurðardóttir sem barðist fyrir því í fjölda ára að breyta lögum um fjárframlög til flokkanna þegar siðferði annarra flokksmanna Samfylkingar er með þeim hætti að þeim finnist eðlilegt að taka á móti margra miljóna styrkjum rétt áður en lögunum var breytt. Það jafn siðlaust. Það skiptir ekki höfuð máli hversu margar miljónirnar voru heldur hitt að við þeim var tekið.
Viðbrögð Sjálfstæðimanna við mútunum er með þeim hætti að þeir líta svo á að það sé ekki fólksins í landinu að hafa skoðun á því ekki frekar en að það hafi skoðun á peningastjórn landsins undanfarin ár. Þeir vita best og formaður flokksins sakar fréttamenn um að hafa of mikinn áhuga á málinu. Hann gerir ekki ráð fyrir að fólkið í landinu hafi áhuga á að fá að vita sannleikann. Það er ekki nóg fyrir Sjálfstæðimenn að tala í örðu hverju orði um vel menntaða þjóð þegar forystumenn flokksins síðan trekk í trekk tala með þeim hætti við þjóðina að hún geti ekki hugsað heila hugsun sjálf. Fólkið í landinu veit að 25 eða 30 miljónir frá einu fyrirtæki til eins flokks er ekkert annað en mútur.
Framsóknarflokkurinn þegir og hefur ekki enn fengið leyfi frá öllum þeim lögaðilum sem styrktu flokkinn árið 2006 til að birta þær upphæðir sem þeir tóku á móti. Þeir aðilar styrktu flokkinn, að sögn formannsins, vegna þess að þeir töldu sig vera að gera góðverk og vilja ekki láta nafns síns getið. Út frá þessum orðum formannsins mætti ætla að Framsóknarflokkurinn sé góðgerðarfélag en ekki stjórnmálaflokkur í lýðræðisríki.
Kveðja,
Grétar Mar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2009 | 12:54
Ó þjóð mín þjóð
Við í Frjálslynda flokknum höfum frá stofnun flokksins barist meðal annars fyrir því að núverandi fiskveiðistjórnunarrkerfi, sem átt hefur hvað stærstan þátt i því að gera þjóðina gjaldþrota, verði lagt af. Við höfum ekki fengið mikinn hljómgrunn fyrir því hjá fjórflokkunum. Við höfum samt ekki lagt árar í bát hvað það varðar og munum halda áfram að berjast til síðasta manns. Við höfum ekki verið tilbúin að selja þetta hagsmunamál okkar og þjóðarinnar, hvorki fyrir mútur né ráðherrastóla. Við viljum ekki að þjóðin hafi dóm Mannréttinda nefndar Sameinuðu þjóðanna á bakinu um að hér á landi séu brotin mannréttindi á fólki.
Þjóðin virðist vera á örðu máli og er leitt til þess að að vita þrátt fyrir háværar kröfur um nýtt Ísland í vetur komi það ekki fram í fylgi þeirra flokka sem stutt hafa sérhagsmunagæslu fyrir fáa útvalda hingað til.
Það verður ekki til nýtt Ísland nema því aðeins að fólkið vilji það því þeirra er valdið. Því skora ég á þjóð mína að skoða hug sinn vel áður en hún lætur leiða sig enn og aftur inn í kjörklefana til að x við áframhaldandi spillingu og sérhagsmunapot.
Kveðja,
Grétar Mar
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.4.2009 kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2009 | 09:11
Atvinna fyrri hluti
Fulltrúar núverandi og fyrrverandi ríkisstjórna landsins tala fjálglega um að skapa mörg þúsund störf á næstu mánuðum. Fulltrúar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins tala um að búa til kerfi til að styðja við atvinnuvegina. Forsenda þess að atvinnulífið blómstri er að þeirra mati kerfi. Þeir eru jú snillingar í að búa til kerfi sem hafa haft það eitt að markmiði að hygla sérhagsmunum og ekkert lát virðist eiga að verða á því. Vinstri Grænir vilja allt nema ekki stóriðju og lausnin á atvinnuleysinu á þeim bæ virðist vera að lækka laun þeirra sem vinna hjá ríki og bæ. það á líka að verða til þess að standa vörð um velferðarkerfið. Tillaga Samfylkingar er í anda þess þegar Framsóknarmenn höfðu það á stefnuskrá sinni á sínum tíma að Ísland yrði vímuefnalaust árið 2000. Sem sagt skýjaborgir sem settar eru fram til að slá ryki í augu kjósenda.
Frjálslyndi flokkurinn leggur áherslu á að við notum og nýtum þá þekkingu og reynslu sem þegar er til staðar í landinu. Með því komum við til með að nota og nýta þann mikla mannauð sem liggur í fólkinu í landinu sem hefur og ætlar sér að vinna í grunnatvinnuvegum þjóðarinnar. Þær tillögur sem við leggjum upp með eru ekki bara atvinnuskapandi heldur koma þær til með að leiða til aukinna tekna til ríkis og bæja. Tekjur þessara aðila eru forsenda þess að hægt sé að standa vörð um velferðarkerfið og þess að ekki þurfi að hækka skatta eins mikið og allt útlit er fyrir að þurfi að gera.Okkar tillögur eru í raun sáraeinfaldar og kalla aðeins á það að úreltum kerfum núverandi fjórflokks verði breytt.
Tillögurnar eru meðal annars þessar;
Nú þegar verði fiskveiðar auknar í flestum tegundum og með því teljum við að tekjur þjóðarinnar aukist um 70-80 miljarða.Við viljum af handfæraveiðar verði gefnar frjálsar fyrir þá aðila sem vilja fara á handfæraveiðar nú í sumar og með því gæti skapast tækifæri til atvinnusköpunar.
Við viljum að raforkuverð til garðyrkjubænda verði lækkað nú þegar. Raforkuverð til garðyrkjubænda var hækkað 30. desember 2008 þegar Sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra tilkynnti þeim að niðurgreiðsla til þeirra yrði lækkuð sem olli því að rafmagnskostnaður þeirra hækkaði um 22.1% í þéttbýli en 29,7% í dreifbýli.
Við í Frjálslynda flokknum teljum að þessu þurfi að breyta til að hægt sé að auka framleiðslu á grænmeti og ávöxtum fyrir innanlandsmarkað. Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að hægt sé að framleiða til útflutnings.
Með þess væri hægt að auka atvinnu í þessari grein og fá auknar samfélagslegar tekjur. Það sem er ekki síst mikilvægt er að þessi framleiðsala er gjaldeyrissparandi sem er lífsnauðsynleg nú þegar krónan okkar er með kút og kork.
Hættum að leita langt yfir skammt að lausnum. Notum og nýtum þær auðlindir sem við eigum núna til að skapa atvinnu og tekjur til heilla fyrir land og þjóð. Þekking okkar og reynsla liggur í grunnatvinnuvegum þjóðarinnar og það er þar sem við eigum að byrja og styðja við bakið á.
Það varð hér þjóðargjaldþrot þegar við ætluðum að fara að verða rík af því að stunda atvinnu sem við höfðum hvorki menntun né reynslu til að stunda.
Það getur vel verið að við verðum olíuveldi í framtíðinni og er það vel. Staðan er hins vegar sú að við þurfum að takast á við vanda dagsins og til þess þurfum við að bretta upp ermar gera það sem gera þarf, í dag.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.4.2009 kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2009 | 12:17
Georg Eiður Arnarson
Georg Eiður Arnarson annar maður á framboðslistanum okkar í Suðurkjördæmi, segir þetta meðal annars á Suðurlandið.is þann 10. apríl 2009;
"Það er gríðarlega mikilvægt að það sé tryggt að sjómenn haldi sínum fulltrúum á Alþingi Íslendinga, sérstaklega núna þegar vinstri flokkarnir eru allt í einu farnir að tala um það, að hægt sé að sækja fjármuni í pyngju undirstöðu atvinnugreinanna og bara svo það sé alveg á hreinu, ég er ekkert hrifinn af þessari svokölluðu fyrningarleið, enda hef ég engan áhuga á að láta úthlutun aflaheimilda í hendurnar á einhverjum vinstri flokkum, þar fyrir utan, þá uppfyllir sú hugmynd ekki álit Mannréttindanefndar. Þar fyrir utan ganga hugmyndir okkar Frjálslyndra út á það að tryggja að rétturinn til að veiða fiskinn haldist í byggðunum, og bara svo það sé alveg á hreinu, þegar nýjasta Ríkisstjórnin var mynduð fyrir ca. 2 mánuðum síðan, þá var haft samband við okkur Frjálslynda og sú hugmynd viðruð að formaður okkar yrði sjávarútvegsráðherra, með því skilyrði að við styddum við þessa minnihluta stjórn. Hins vegar var okkur líka tilkynnt, að við mættum ekki gera neinar breytingar á kvótakerfinu til lengri eða skemmri tíma. Þetta gátum við ekki samþykkt, en buðum það að, að minnsta kosti, út á stuðning okkar að Íslenska þjóðin fengi aftur að stunda frjálsar handfæraveiðar bara þetta sumarið, en því var algjörlega hafnað".
Fyrir þá sem vilja lesa alla greinina er slóðin; http://www.sudurlandid.is/?p=101&id=28233
Kveðja,
Grétar Mar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2009 | 11:55
Kostningaskrifstofa á Selfossi
Við í Frjálslynda flokknum opnum kosningaskrifstofu í Sigtúni á Selfossi í dag kl. 17.
Frambjóðendur flokksins verða á staðnum og boðið verður upp á kaffi og meðlæti.
Kveðja,
Grétar Mar
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.4.2009 kl. 18:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2009 | 11:41
Segir styrk FL Group makalausan
Guðjón Arnar segir í viðtali á heimasíðu Bæjarins Besta í dag að styrkir FL Group séu makalausir.
Slóðin á fréttina er; http://bb.is/pages/1.
Kveðja,
Grétar Mar
13.4.2009 | 10:49
Enn um spillingu
Sigurður Þórðarson spyr á blogginu sínu í dag fyrir hvaða greiða byggingarfyrirtækið Eykt hafi borgað 5 miljónir til Framsóknarflokksins. Slóðin er; http://siggith.blog.is/blog/ginseng/
Það má spyrja sig í sambandi við óheyrilega háa styrki til fjórflokkana hver hafi í raun stjórnað landinu. Voru það fulltrúar fólksins á Alþingi eða þau fyrirtæki sem borguðu í kosningasjóði fjórflokkana sem hafa í raun ráðið hér á landi.
Ég hef rætt við fjölda fólks undanfarna daga og nú spyr fólk hverjir hafi borgað í prófkjörsjóði frambjóðanda? Það er spurning sem líka þarf að fá svör við og það nú fyrir kosningar.
Krafa fólksins á Austurvelli í vetur var nýtt Íslands sem tæki til þess að hagur alls almennings yrði hafður að leiðarljósi við stjórn landsins en ekki sérhagsmunir einstaka fyrirtækja eða samtaka. Í krafti þess er nauðsynlegt að fá það upp á borðið hvort og þá hvaða fyrirtæki hafa borgað í prófkjörssjóði núverandi frambjóðenda til Alþingis og þetta verður að upplýsa fyrir kostningar.
Kveðja,
Grétar Mar
12.4.2009 | 14:52
Páskar
Það hefur verið ýmislegt að gerast nú yfir páskanna. Á miðvikudagskvöld var forsýning á Sveitarpiltsins draumi í Listasafni Íslands og átti ég skemmtilega kvöldstund með ferðafélögum frá því í ferðinni ásamt öðrum þeim sem komu að myndinni.
Á skírdag hitti ég bæjarmálafélag Grindavíkur þar sem farið var yfir stöðuna bæði hvað varðar það að meirihluti bæjarstjórnar er sprunginn og síðan var ákveðið að opna kosningaskrifstofu í Grindavík og verður það gert nú í vikunni. Það sama á við um Selfoss þar sem skrifstofa verður opnuð á þriðjudaginn. Okkar góði maður í öðru sæti hann Georg Eiður Arnason mun vera á skrifstofunni næstu daganna. Honum til halds og traust verður hin eini og sanni Sægreifi ásamt fleira góðu stuðnigsfólki okkar á Selfossi. Kostningaskrifstofan er staðsett í hinu sögufæga húsi Sigtúni.
Kveðja,
Grétar Mar
12.4.2009 | 14:38
Frjálsar handfæraveiðar
Ég hitti mann í gær sem sagði mér að nú væri hann orðin atvinnulaus og sá ekki fram á að fá vinnu á ný við sama starf sem tengdist byggingariðnaði. Þessi maður var á árum áður á sjó en ákvað að skipta um starfsvettvang. Hann sagði síðan við mig að þótt hann gæti hugsað sér að kaupa trillu og fara að sækja sjó til að sjá sér og sínum farborða gæti hann það ekki í núverandi kerfi.
Við í Frjálslinda flokknum leggjum áherslu á það í stefnu okkar að nauðsynlegt sé að opna fiskveiðar fyrir nýliðun strax með því að leyfa frjálsar handfæraveiðar á eigin bátum allt að 30 tonn að stærð með tveimur mönnum mest í áhöfn og 4 rúllum.
Þetta er ein af þeim leiðum sem við teljum að eigi að fara til að stemma stigum við atvinnuleysi og um leið að gefa mönnum tækifæri á að koma inn í greinina.
11.4.2009 | 10:38
Fáni Frjálslynda flokksins á Heimakletti.
Hann Georg fór upp á Heimaklett í gær og tók með sér fánan okkar.
Inn á blogginu hans Georgs eru mjög skemmtilegar myndir sem teknar voru í þessari ferð og er slóðin; http://georg.blog.is/blog/georg/
Kveðja,
Grétar Mar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.4.2009 kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2009 | 09:58
Framlög til Frjálslynda flokksins
Guðjón Arnar sagði á Visir.is í gær að flokkurinn hafi í allt fengið um fimm milljónir í heildarstyrk frá lögaðilum árið 2006. Hæsti styrkurinn var ein milljón sem kom frá Samvinnutryggingum en það fyrirtæki strykti alla flokka jafnt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.4.2009 kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2009 | 11:29
Spilling í boði fjórflokkanna
Frá því að bankakerfið hrundi í október síðastliðin hafa formenn fjórflokkanna á Alþingi hver un annan þveran reynt að sverja af sér ábyrgð vegna þess. Engin vill kannast við að hafa gert neitt það sem leiddi til þessa ástands. En ef málið er skoðað kemur annað í ljós.
Margir hafa haldið því fram að upphafa þeirra kreppu sem við erum nú stödd í og sér ekki fyrir endann á sé tilkomin vegna þess kvótakerfis sem sett var á í tengslum við fiskveiðar. Með því var þeirri sameiginlegu auðlind þjóðarinnar sem er fiskurinn í sjónum áhentur fáum einstaklingum og var þetta gert með vilja Alþingis.
Markmið lagasetningarinnar var að vernda fiskistofnana í hafinu. Forsvarsmenn LÍÚ sögðu að þetta væri leið til að skapa hagkvæmni í greininni. Hagkvæmnin átti að koma til af því að betur væri hægt að skipuleggja veiðarnar og það átti að leiða til betri og skilvirkari reksturs.
Ekkert markmið laganna hefur náð fram að ganga. Lögin hafa ekki leitt til þess að viðhalda stofnunum, veiðar hafa dregis saman ár frá ári og það hefur komið í ljós að sjávarútvegurinn hefur aldrei verið jafn skuldsettur og hann er í dag.
Það er gott og vel að Alþingi sjái til þess að ekki sé gengið á auðlindir með þeim hætti að komandi kynslóðir geti ekki einnig nýtt þær og notað.
Það er bara þannig í dag að það hefur sýnt sig að lögin um fiskveiðistjórnum sem talið er að hafi verið samið á skrifstofu LÍÚ sem síðan Framsókn og Sjálfstæðisflokkur sáu um að keyra í gegnum Alþingi hefur fengið dóm um að brjóta gegn mannréttindum. Þau brjóta gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar um að fólk eigi að getað stundað vinnu sem það sjálft velur að stunda.
Jafnvel Vinstri Grænir hafa lagt blessun sína yfir þetta kerfi því það gerði núverandi formaður flokksins Steingrímur J. Sigfússon þegar hann greiddi atkvæði með frjálsa framsalinu árið 1990. Og það er fyrst nú sem Samfylkingin hefur með ákveðnum hætti sett inn í sína stefnuskrá sína að þeir eru tilbúnir að breyta núverandi fisveiðistjórnunarkerfi en hingað til hafa þeir stutt núverandi kerfi með þögninni.
Eini flokkurinn á Alþingi sem hefur barist gegn núverandi fiskveiðistjórnakerfi er Frjálslindi flokkurinn og við munum berjast áfram. Þetta munum við gera vitandi það að það mun koma lítið af framlögum inn í kosningasjóðinn okkar frá fyrirtækjum sem telja að þeim verði áfram tryggð forréttindi ef fjórflokkurinn kemur til með að hafa sama vægi á Alþingi í framtíðinni og þeir hafa nú.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2009 | 19:37
Spilling
Það sér ekki fyrir endann á þeirri spillingu sem viðgengist hefur hér á landi með velvilja stóru stjórnmálaflokkana undanfarin áratug að minnsta kosti.
Nú hefur komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegið í allt 55 miljónir í styrki frá tveimur fyrirtækjum sem nú eru í rannsókn vegna óeðlilegra viðskiptahátta.
Gæti verið að Landsbankinn og Fl Group hafi verið að borga fyrir greiða eða var markmiðið að tryggja sér áframhaldandi velvilja hjá stærsta stjórnmálaflokki landsins sem var þá í þeirri stöðu að geta haft áhrif á gang mála eða hverjum var selt hvað af eignum ríkisins.
Þetta var kannski löglegt en það er alveg á hreinu að þetta er siðlaust.
Er þetta kannski toppurinn á ísjakanum eða á eftir að koma í ljós að aðrir flokkar hafi fengið fyrirgreiðslu af þessari stærðargráðu.
Hafa kannski fleiri fyrirtæki en þessi tvö greitt svipaðar upphæðir til Sjálfstæðisflokksins eða annarra stjórnmálaflokkanna undanfarin ár.
Hefur kannski Framsóknarflokkurinn fengið álíka styrki frá Kaupþingi eða sægreifum Íslands sem fengu auðlindir hafsins gefins sem þeir hafa síðan notað til að skapa það ófremdarástand sem ríkir hér á landi nú um stundir.
Kveðja,
Grétar Mar